Velkomin á heimasíðu NJC
Endurmenntunarstofnun norrænna blaðamanna (NJC) gegnir því hlutverki að viðhalda og auka áhuga fjölmiðla fyrir norrænu samstarfi og menningarlegum tengslum. NJC setur fagleg málefni í norrænt samhengi og það sama gildir um stjórnmál, fjármál og félagsmál og menningarmál.
NJC skipuleggur fjölbreytt námskeið og námstefnur og stendur auk þess fyrir ýmis konar annari starfsemi sem er í boði fyrir fjölmiðlafólk frá Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Grænlandi, Færeyjum og Álandseyjum.
NJC leggur áherslu á að starfsemin sé skipulögð í náinni samvinnu milli landanna. Þó svo að þessi almenni kynningartexti á heimasíðunni sé á finnsku, íslensku, grænlensku og færeysku, er samt gerð sú krafa að þátttakendur í námskeiðum NJC geti bjargað sér á norsku, sænsku eða dönsku. Reynt er að skipuleggja hvert námskeið þannig að fyrirlesaranir séu eins norrænir í framsetningu sinni og mögulegt er og reyni að nota aðgengilegan orðaforða í framsetningu efnis.
Ætlast er til þess að þátttakendur í námskeiðum NJC séu virkir á meðan námskeiðin standa yfir og nýti tækifærið til þess að byggja upp norræn tengslanet og miðla faglegum upplýsingum. NJC hefur það að leiðarljósi að námskeiðin séu liður í því að mynda hóp fjölmiðlafólks sem hefur sérþekkingu á norrænum málum jafnframt því að hafa skilning á stöðu Norðurlanda í Evrópu og stöðu þessa heimshluta í alþjóðlegu samhengi.
NJC er rekið sem verkefni fjármagnað af Norrænu ráðherranefndinni og hefur dönsku endurmenntunarstofnunninni „ Update“ verið falið að halda utan um verkefnið frá 2007-2009. Update er til húsa í Danska fjölmiðla og blaðamannaskólnaum í Árósum, en námskeið NJC eru hins vegar haldin víðs vegar um heiminn – eða þar sem norræn vídd á við.

